Skráning

Hefur þú áhuga á andlegri heilsu?

Finnur þú köllun til að hjálpa öðrum?
Þá gæti þetta nám verið fyrir þig.
NÁM Í ANDLEGRI EINKAÞJÁLFUN
Er andleg heilsa mikilvæg fyrir þig og viltu læra að leiðbeina öðrum í gegnum djúpa og árangursríka innri vinnu?
3ja anna fjarnám sem sameinar djúpa sjálfsvinnu, praktísk verkfæri og faglega leiðsögn í að vinna með fólki.

Þetta er tækifæri fyrir þig til að:
- byggja upp nýja starfsleið
- innleiða þekkinguna inn í núverandi starf
- eða einfaldlega fara í djúpa og markvissa sjálfsuppbyggingu

Endalausir möguleikar með nýrri sýn á sjálfan þig, aðra og lífið í farteskinu.

UMSAGNIR

"Ég er sko meira en sátt, ég er alsæl og þakka almættinu að ég sá auglýsinguna á Facebook – sem kveikti neistann. Ég er bara búin að sjá lífið í nýju ljósi"
“Þetta er besta gjöfin sem ég hef gefið sjálfri mér, ég elska þetta nám”
“Mér líður eins og ég sé búin að fara í 100 sálfræðitíma og 100 sjálfsstyrkinganámsskeið”

UM NÁMIÐ

3 annir (15 mánuðir)
280 klst nám
Fjarnám – þú getur lært hvar sem er og hvenær sem er
Innri vefur - allt mjög auðvelt og aðgengilegt í notkun
Einkatímar + hóptímar
Verkefnavinna og praktísk þjálfun

Greiðsluleiðir
- Fjárfesting: 590.000 kr. (heildarverð fyrir allar annirnar)
- Allt að 15 mánaða greiðsludreifing
- 10% staðgreiðsluafsláttur
- Skráningargjald: 50.000 kr. (til að festa plássið)

Tryggðu plássið þitt í næstu önn
*Takmörkuð pláss í boði

Eftir skráningu færðu upplýsingar um næstu skref og hvað bíður þín í náminu og ferðalaginu framundan.
Scroll to Top