12 mánaða andleg einkaþjálfun - Það er komið að þér að blómstra!
Ertu að upplifa - Kvíða - þunglyndi - depurð - að vera týnd með sjálfa þig - að vera á krossgötum í lífinu - erfið samskipti við vissa aðila í þínu lífi - sjálfsniðurrif - ofhugsanir - neikvæðan huga - efast um eigið ágæti - lágt sjálfsmat - að standa ekki með þér - að vera að bæla þig eða þínar tilfinningar niður Er kominn tími fyrir breytingar? Markvisst námskeið sem fer fram í gegnum netið. Þú færð aðgang að innri vef sem er stútfullur af mikilvægum fróðleik, verkefnum, hljóð- og vídjó upptökum og ýmsu öðru skemmtilegu. Ég deili síðan einnig reynslusögum úr mínu lífi og hvernig ég hef nýtt þessa nálgun fyrir mig, en hér áður var ég að eiga við þunglyndi, kvíða, sjálfsniðurrif af ýmsu tagi, efaðist um eigið ágæti, átti í krefjandi samskiptum við vissa aðila í mínu lífi og var almennt mjög týnd með sjálfa mig. Þannig að ég deili hvernig ég hef unnið mig frá þessu öllu og öðlast mun dýpri tilgang og innri frið. Námskeiðið er sett upp þannig að þú færð einn mánuð í einu til að vinna með og ferð þetta algjörlega á þínum hraða. Síðan eru reglulegir 60 mín. einkatímar þar sem við getum farið mun dýpra í málin, þeir fara fram í gegnum Zoom/Messenger. Námskeiðið fer inn á nánast allt sem viðkemur lífinu sjálfu og að námskeiðinu loknu munt þú horfa á sjálfa þig, aðra og lífið almennt í allt öðru ljósi. Það er í 12 mánuði af ástæðu, en við erum yfirleitt að vinna okkur út úr margra ára (úreltu) hugsana- og hegðunarmynstrum og það tekur tíma að snúa því við. Verð: 24.900 kr. á mánuði (miðað við 12 mánaða greiðsludreifingu) * 10% staðgreiðslu afsláttur ( á heildarverði 12 mánaða námskeiðsins) Það er komið að þér að blómstra! Allar frekari upplýsingar og skráning: hrafnhildur@andlegeinkathjalfun.is Ég tek vel á móti þér!