Ævintýri

 

8 daga Retreat
Paradísareyjan Balí & Nusa Lembongan
Dagana 20. – 28. mars 2027

Balí ævintýri! 
Komdu með okkur í sannkallaða draumaferð til töfrandi Balí og upplifðu endurnærandi umhverfi fyrir bæði sál og líkama. Þú kemur til baka með splunkunýja útgáfu af sjálfri þér og með ævintýralegar minningar í farteskinu sem fara með þér inn í þína fallegu framtíð. 

Upplifun
Unaðslegt retreat og stórbrotin náttúrufegurð.
Við höfum sett saman sannkallaða draumaferð þar sem þú munt njóta þín í botn í dásamlegum félagsskap, fara í nudd, jóga, hugleiðslu, tónheilun og fá menningu Balíbúa beint í æð. Öll skynfæri líkamans virkjuð og mögnuð upp! Er þetta að heilla þig upp úr skónum? …haltu þá áfram að lesa! 🙂 

Gisting
Þú munt gista í 8 nætur á þremur 4* hótelum, annars vegar 4 nætur í andlega bænum Ubud, 2 nætur á paradísareyjunni Nusa Lembongan, síðan endar þú ferðina í Ubud síðustu 2 næturnar. Þar gerast töfrarnir! Magnaðir staðir! 

Dagskrá
* (drög að dagskránni með fyrirvara um breytingar)

U B U D
20. – 24. mars

20. mars – DAGUR 1
Vúhúúú þú lendir á paradísareyjunni og færð góðar móttökur á flugvellinum. Við byrjum ferðina í töfrunum í Ubud, ferðin þangað tekur allt að 2 klst. (fer eftir umferð)
Innritun inn á hótel og afslöppun 
Innifalið í deginum:
– Akstur frá flugvelli og á hótelið í Ubud

21. mars – DAGUR 2
Mæting kl: 9:45 í anddyri hótelsins í jóga klæðnaði eða þægilegum fatnaði (vera búin að borða léttan morgunmat)
10:00 – 11:00 – Jógaæði! – Náum flugþreytunni úr okkur.
11:00 – 13:00 – Velkomin til Balí spjall með Hrafnhildi
13:00 – 17:30 – Frjálst (skrepptu í balinískt nudd, dýfðu tásunum í sundlaugina eða það sem þú vilt!) 
Kl: 17:30 / Mæta í anddyri hótelsins í þægilegum fatnaði
Full Moon serimónía / Tónheilun í Pyramids of Chi 18:00 – ca. 20:30
Setjum tóninn fyrir ferðina! 

Innifalið í deginum:
– Morgunmatur á hótelinu
– Kvöldhressing á veitingastaðnum/kaffihúsinu í Pyramids of Chi (áður en tónheilunin byrjar) – Vegan
– Tónheilun 19:00 – 20:30
– Akstur fram og tilbaka frá hóteli og Pyramids of Chi

22. mars – DAGUR 3
Óvissuferð – Heill dagur – Þjöppum hópinn saman í gegnum magnaða upplifun!
Mæting í anddyri hótelsins kl. 07:45 (vera búin að borða morgunmat) 8:00 – 18:00 (sirka) Dagur sem mun koma á óvart!
Koma með: Sundfatnað, Sarong, föt til skiptana, lítið handklæði og góða skapið 😀

Innifalið í deginum:
– Morgunmatur á hótelinu (fyrir brottför/kl: 08:00)
– Óvissuferð með balinískri fararstjórn
– Hádegismatur innifalið í ferðinni

23. mars – DAGUR 4
Mæting í anddyri hótelsins kl. 08:15
09:30 – 09:00 Létt jóga í einu fallegasta jógastúdíói í Ubud.
9:00 – 13:00 – Morgunhressing & sjálfsræktarspjall á dásamlegum stað á hrísgrjónaakri – létt ganga. Eftir dásemdar jógað, göngum við saman upp hrísgrjónaakurinn og fáum okkur litríka hressingu.
14:00 – …  Frjáls tími! Skelltu þér í nudd, á markaðinn, í tarot lestur eða slappaðu af á sundlaugarbakkanum… endalausir möguleikar.

Innifalið í deginum:
– Morgunmatur á hótelinu
– Létt jóga á dásemdar stað
– Morgunhressing eftir jógað 

24. – 26. mars Ubud / Nusa Lembongan
9:30 Mæting í anddyri – CHECK OUT (vera búin að borða morgunmat) Ferðadagur – Við færum okkur yfir á paradísareyjuna Nusa Lembongan

24. júní – DAGUR 5
Velkomin á paradísareyjuna Nusa Lembongan
Eftir ferðalagið og bátsferðina frá Balí til Nusa Lembongan (tekur ca. 30 mín. með bát) þá nærum við okkur með kærkominni hvíld eftir annríki undanfarinna daga 🙂 Svömlum í lauginni, dýfum tásunum í sjóinn sem er beint fyrir utan hótelið, fáum okkur mocktail/cocktail og njótum í botn! Tilvalið að nýta daginn í dagbókarskrif, bókalestur, skreppa í nudd eða einfaldlega vera til. 

Mæting aftur í anddyri hótelsins kl: 16:15
17:00 – Tónheilun á dásemdar stað

Innifalið í deginum:
– Morgunmatur á hótelinu
– Bátsferð yfir til Nusa Lembongan
– Tónheilun á dásemdar stað

25. mars – DAGUR 6
FRJÁLS DAGUR!
Dagurinn er frjáls – leiktu þér á eyjunni! Endalausir möguleikar. Bókaðu ferð í snorkl, lestu bók á sundlaugarbakkanum/dagbókarskrif, farðu á ströndina, svamlaðu í sjónum, fáðu þér leiguvespu “leigubíl” (Engir bílar en þú getur pantað þér far með vespu) og skrepptu yfir á eyjuna Nusa Ceningan, skoðaðu þeirra Blue Lagoon, farðu í nudd eða einfaldlega leyfðu þér bara að vera til.

26. mars – DAGUR 7
CHECK OUT – mætum í anddyrið – eða við innganginn kl. 10:30 Bátsferð tilbaka – Förum aftur í dásemdina í Ubud þar sem við endum ferðina

18:30 – 20:30 – Hittumst í anddyri hótelsins og löbbum í krúttað jógastúdíó Mæta í þægilegum fatnaði

Innifalið í deginum:
– Morgunmatur á hótelinu
– Bátsferð frá Nusa Lembongan til Balí
– Jógatími

27. mars – DAGUR 8
9:00 – 10:30 Jógaæði 
12:00 – Ganga í apagarðinn (frjálst) 
Dagur frjáls: Kíktu á markaðinn, skrepptu í nudd eða sólaðu þig á sundlaugarbakkanum.

LOKAKVÖLDIÐ:
Mæting kl: 18:30 í anddyri hótelsins
Síðasta kvöldið okkar saman – Göngum saman á ævintýralegan veitingastað og upplifum töfrandi kvöldstund saman. Skálum fyrir síðasta kvöldinu okkar saman í paradís!

28. mars – DAGUR 9
CHECK OUT – brottför heim eða þangað sem þú ferð næst! 

Innifalið í ferðinni: 
– 4 stjörnu hótel í Ubud og Nusa Lembongan í 8 nætur
– Morgunmatur alla morgna
– Akstur í skráðri dagskrá
– Bátsferð fram og tilbaka frá Balí og Nusa Lembongan
Í- slensk fararstjórn með Hrafnhildi 
Einstaka hádegis- og kvöldverðir samkvæmt dagskrá
Aðgangseyrir í afþreyingu samkvæmt dagskrá: Jóga, tónheilun, óvissuferð og fleira. 

Ekki innifalið í ferðinni: 
– Flug til Balí 
– Vísa inn í landið (VOA – Visa on Arrival, greitt á staðnum) Ca. 5000 kr. 
– Akstur á flugvöll að lokinni dagskrá og annar akstur fyrir utan dagskrá.
– Máltíðir sem eru ekki nefndar í dagskránni. 
– Afþreying fyrir utan dagskrá ferðarinnar.
– Þjórfé (valkvætt) 

Ævintýralegt verð!

Tvíbýli: 379.000 kr. 

Einbýli: 439.000 kr. 

*flug ekki innifalið
*10% staðgreiðslu afsláttur 

Staðfestingargjald: 75.000 kr.

Allar helstu upplýsingar: 
hrafnhildur@andlegeinkathjalfun.is
Scroll to Top