Meðvitaðir foreldrar
Þín heilun - gjöf barnsins❤“Barnið þitt þarf ekki fullkomið foreldri, heldur meðvitað foreldri.❤
Sem foreldrar förum við óhjákvæmilega með meira inn í foreldrahlutverkið en við gerum okkur oft grein fyrir. Við erum ekki bara að bregðast við barninu okkar í augnablikinu, heldur erum við líka að bregðast við okkar eigin sögu, tilfinningum og varnarkerfi.
Óuppgerð reynsla úr æsku, gamlar tilfinningar sem hafa ekki fengið pláss, streita, ótti og innri spenna fylgja okkur oft inn í daglegt líf án þess að við áttum okkur á því. Þetta birtist í litlum hlutum sem hafa stór áhrif. Í tóninum sem við notum, eða viðbrögðum, þolinmæðinni sem klárast stundum alltof fljótt eða þörfinni fyrir að hafa stjórn á öllu og gera það sem er “rétt” að gera samkvæmt samfélaginu.
Börnin okkar skynja þetta. Ekki bara í orðum, heldur í öllu því sem við sendum frá okkur. Þau lesa á milli línanna og aðlagast því sem þau upplifa í kerfinu okkar.
Börnin okkar finna þetta mjög skýrt, jafnvel þó við segjum ekkert. Þau skynja spennu, óöryggi og innri ójafnvægi. Börnin aðlagast þessu og móta sinn innri heim út frá aðstæðum á heimilinu og viðbrögðum okkar.
Þess vegna snýst foreldrahlutverkið ekki bara um uppeldi eða aðferðir. Það snýst fyrst og fremst um að heila okkar eigin vegferð, svo börnin fá ekki í veganesti það sem foreldrarnir eru með í eftirdragi.
NÁMSKEIÐ
Þetta er ferli sem snýst um þig og þína innri vinnu. Við fylgjum þér, styðjum þig og vinnum með þér þar til þú finnur að þú ert komin/n á þann stað að þú vilt sjá fyrir sjálfan þig. Foreldrahlutverkið er ekki fast form heldur lifandi og síbreytileg vegferð. Börn fara í gegnum ólík þroska- og tilfinningaskeið sem kalla sífellt á ný viðbrögð, dýpri skilning og aukna meðvitund.
Þess vegna er þetta ekki bara námskeið, heldur ferli sem vex með þér og styður þig á hverju stigi.
Þú lærir að:
– staldra við og mæta sjálfri/sjálfum þér með ró, mildi og skýrari sýn
– skilja betur tilfinningar þínar, viðbrögð og þau mynstur sem móta þig sem foreldri
– þekkja varnarviðbrögð þín og velja meðvitað hvernig þú bregst við
– losna smám saman úr sjálfstýringu og gömlum vana
– styrkja tengslin við sjálfa/n þig og þar með barnið þitt
– heila fortíðina þína svo framtíðin geti verið mun bjartari
– Ná betri tökum á huganum þínum (oft er sagt að allt byrjar og endar á okkar eigin huga)
Sem skapar fyrir barnið þitt:
– meira öryggi og tilfinningalegan stöðugleika
– upplifun af því að vera séð, heyrt og skilið
– rólegri og öruggari samskipti
– rými til að tjá tilfinningar sínar án ótta
– sterkari sjálfsmynd og innra öryggi til framtíðar
– aukið sjálfstraust í eigin tilfinningum og upplifun
– betri hæfni til að takast á við erfiðar tilfinningar
– traustari tengsl sem styðja við heilbrigð samskipti síðar á lífsleiðinni
Þetta er djúp innri vinna sem skapar varanlega breytingu, bæði fyrir þig og barnið þitt/börnin þín. Þín sjálfsuppbygging verður grunnurinn að framtíð barnsins þíns.
Innifalið í áskrift
– Aðgangur að samfélagi foreldra og verðandi foreldra
– Mánaðarlegir hópfundir (online)
– Minni hópar fyrir dýpri tengingu
– Fróðleikur, sérhæfð verkefni og spurningar til íhugunar
– Stuðningur og hvatning frá kennurum í gegnum tölvupóst
– Aðgangur að innri vef þar sem þú nálgast fróðleikinn og verkefnin, ásamt lokuðu samfélagi á Skool.
Jákvæð og uppbyggileg nálgun og samfélag
Fjárfesting til framtíðar - fyrir þig og barnið þitt.
Þetta er ekki bara ákvörðun um að taka þátt á námskeiði, heldur ákvörðun um að mæta sjálfri/sjálfum þér á nýjan hátt. Að rjúfa mynstur, dýpka tengsl og skapa öruggari grunn fyrir næstu kynslóð.
✔️ Áskriftarleið
✔️ Þú getur byrjað hvenær sem er
✔️ Þú getur hætt hvenær sem er (að lokinni 3ja mánaða skuldbindingu)
Verð: 18.900 kr. á mánuði
Ef þetta snertir eitthvað innra með þér, þá er það kannski vegna þess að þú ert tilbúin/n að gera hlutina öðruvísi.
Við hlökkum til að taka á móti þér og deila með þér töfrunum
Hrafnhildur & Katrín
hrafnhildur@andlegeinkathjalfun.is
Ég er algjör ævintýrakona og gjörsamlega elska lífið, með öllum sínum upp- og niðursveiflum. Ég er með brennandi áhuga á öllu sem viðkemur andlegri heilsu og tel það vera allra besta formið sem við getum verið í um ævina! Ég er svo lánsöm að fá að lifa tilganginn minn í þessu lífi og starfa við það sem ég elska, sem er að leiðbeina öðrum að líða margfalt betur með sjálfan sig og lífið almennt. Það er magnað að fá að vera samferða þessum einstaklingum sem til mín leita og vera ogguponsulítill partur af þeirra andlegu vegferð.
Ástæðan fyrir því að ég bjó til þetta námskeið er sú, að mér hefur fundist á undaförnum árum við vera að fjarlægast meira og meira okkar innri kjarna, í gegnum frétta- og samfélagsmiðla eru raddirnar orðnar svo háværar og allir að miðla áfram "réttri" leið, hvort sem það snýr að foreldrahlutverkinu, andlegri eða líkamlegri heilsu, hvað sé gott eða slæmt fyrir okkur sjálf eða börnin okkar... og við bara týnum okkur sjálfum í öllum þessum hávaða. Ég hef fengið ungar mæður til mín í einkatíma sem eru svo óöruggar því þær eru að hlusta á allar raddirnar fyrir utan sjálfan sig. Já, hávaðinn er á ansi hárri stillingu! Þetta námskeið mun vonandi ná að lækka hljóðið í öllum fyrir utan þig svo þú farir að heyra betur í þínum eigin tónum. Þannig getur þú verið öruggari í öllu því sem þú ert að gera og þar á meðal foreldrahlutverkinu, því þú ert þá í meira mæli að fylgja þínu eigin innsæi og kjarna.
Síðastliðin 10 ár hef ég heyrt að bæði námskeiðin og námið sem ég býð upp á ætti að vera kennt í öllum skólastigum landsins og því er ég hjartanlega sammála. Í mörg ár hef ég óskað að skólakerfið myndi bjóða ungum börnum upp á meiri kennslu í sjálfinu sínu, huga og að læra inn á eigið kerfi. En þegar ég hugsaði þetta lengra að eins dásamlegt og það væri að kenna börnum í meira mæli að elska sjálfan sig að þá væru þessi dásemdar börn með óheilaða foreldra á kantinum, sem myndu eflaust ekki grípa þau á þeirri vegferð. Það er því mín von að með því að fara af stað með námskeið sem þetta, að þá byrjuð við á "réttum" enda og að heila foreldra þessara barna fyrst. Fá fleiri meðvitaða foreldra og þá verður sú heilun gjöf barnsins.
Stofnandi/eigandi, kennari og andlegur einkaþjálfari. Hef yfir 10 ára reynslu í að leiðbeina öðrum í sitt allra besta andlega form.
Ég heiti Katrín Kristinsdóttir og er þriggja barna móðir að norðan. Er menntaður hjúkrunarfræðingur og andlegur einkaþjálfari.
Ég hef unnið við að hjálpa fólki í mjög langan tíma og þegar ég byrjaði í andlegri einkaþjálfun fann ég strax hvað það átti vel við mig og hversu frábær viðbót það væri með hjúkruninni. Í dag gæti ég vel hugsað mér að vinna eingöngu sem Andlegur einkaþjálfari. Að finna gleðina og orkuna sem fylgir því að hjálpa öðrum að byggja sig upp andlega er svo dásamlegt.
Ég varð sjálf foreldri í fyrsta skipti tvítug, og hefði svo óskað þess að hafa haft þau verkfæri sem ég hef í dag um sjálfa mig og mínar tilfinningar þá.
Ég hefði ekki getað trúað því þá að ég í raun þekkti sjálfa mig lítið sem ekkert... hvernig getur það eiginlega verið...? Og að fara út í nýtt og stórt hlutverk sem að verða foreldri er, með litla vitneskju um hvernig ég ætti að tækla sjálfa mig hvað þá að hugsa um hag barns er ansi stór biti.. En auðvitað gerði ég það besta sem ég gat í þeim aðstæðum.
Eftir að ég kláraði námið í Andlegri einkaþjálfun varð ég pínu ,,óþolandi".. ég var endalaust meðvituð um mína hegðun og hugsanir sem og hegðun og tal annarra. Þá sá ég hversu gríðarlega mikil þörf er á því að dreifa þessum boðskap og dreifa þessum fallegu fræjum eins mikið og víða og mögulega hægt er ! Þegar dætur mínar voru á leikskólaaldri ákvað ég að fara sjálf að vinna á leikskólanum þeirra og var þar í rúm þrjú ár. Þar sá ég svo greinilega hvernig stressaðir foreldrar komu með sressuð og vanlíðandi börn og yfirvegaðir foreldrar með róleg og yfirveguð börn.. ég kveikti ekki á því þá, en eftirá sá ég svo vel hvernig við færum okkar líðan og tilfinningar yfir í líðan og hegðun barnanna okkar.. Við ætlum okkur það alls ekki, en gerum það ómeðvitað.. og sé ég það svo vel í dag hvað það er mikið í okkar og barnsins hag já og auðvitað fjölskyldunnar að vera meðvituð um streituna í umhverfinu okkar, takast á við okkur sjálf og okkar lífsins verkefni.
Í dag er ég að vinna sem hjúkrunarfræðingur og andlegur einkaþjálfari, er enn að uppgötva sjálfan mig og bæta við fleiri verkfærum í verkfærabeltið mitt. Það fallega og góða við sjálfsvinnu er að við getum alltaf á okkur blómum bætt og haldið áfram að bæta líf okkar og annarra í kringum okkur.