Ertu að upplifa: - Kvíða - þunglyndi - Depurð - Að vera týndur með sjálfan þig - Að vera á krossgötum í lífinu - Að eiga erfið samskipti við aðra - Að vera með neikvæðan huga - Sjálfsniðurrif - Ofhugsanir - Efast um eigið ágæti - Lágt sjálfsmat - Að standa ekki með þér - Að vera að bæla þig eða þínar tilfinningar niður - Erfitt tímabil og þú veist ekki hvernig þú átt að koma þér þaðan? Er kominn tími fyrir breytingar?
Markvisst 12 mánaða námskeið sem miðar að því að koma þér í þitt allra besta andlega form! Námskeiðið fer fram í gegnum netið og þú færð aðgang að innri vef sem er stútfullur af mikilvægum fróðleik, verkefnum, hljóð- og vídjó upptökum og ýmsu öðru skemmtilegu. Ég deili síðan einnig reynslusögum úr mínu lífi og hvernig ég hef nýtt þessa nálgun fyrir mig og mitt líf, en hér áður var ég að eiga við þunglyndi, kvíða, sjálfsniðurrif af ýmsu tagi, efaðist um eigið ágæti, átti í krefjandi samskiptum við vissa aðila í mínu lífi og var almennt mjög týnd með sjálfa mig. Þannig að ég deili hvernig ég hef unnið mig frá þessu öllu og öðlast mun dýpri tilgang og innri frið. Námskeiðið er sett upp þannig að þú færð einn mánuð í einu til að vinna með og ferð þetta algjörlega á þínum hraða. Síðan eru 60 mín. einkatímar í hverjum mánuði með leiðbeinanda þar sem kafað er mun dýpra í málin, þeir fara fram í gegnum ZOOM/Messenger. Markmið námskeiðsins er að byggja þig og þitt líf upp og að því loknu munt þú horfa á sjálfan þig, aðra og lífið almennt í allt öðru ljósi. Það er í 12 mánuði af ástæðu, en við erum yfirleitt að vinna okkur út úr margra ára (úreltu) hugsana- og hegðunarmynstrum og það tekur tíma að snúa því við. Einnig eru 2 Zoom hóp fundir í hverjum mánuði Innifalið í námskeiðinu: - 12 mánaða aðgangur að leiðbeinanda í gegnum tölvupóst og aðhaldið sem þú þarft. - 12 einkatímar í gegnum netið (Zoom / Messenger) - 60 mínútna einkatími einu sinni í mánuði - 12 mánaða stuðningur og hvatning frá leiðbeinanda - 12 mánaða aðgangur að innri vef sem er stútfullur af fróðleik, verkefnum og fleira. - Persónuleg nálgun þar sem leiðbeinandi deilir einnig reynslusögum úr sínu lífi - Öll gögn. Allan þjálfunartímann færðu mikilvægan fróðleik, verkefni, hljóð- og vídjóupptökur, ásamt hugmyndum af bókum, bíómyndum, fyrirlestrum og ótal mörgu öðru að vinna með. Þú ert að vinna með einn mánuð í einu - Þú ferð þetta á þínum tíma og á þínum hraða! Heildarverð fyrir í heilt ár í andlegri einkaþjálfun: 298.800 kr. Verð: 24.900 kr. á mánuði (miðað við 12 mánaða greiðsludreifingu) * 10% staðgreiðslu afsláttur (á heildarverði námskeiðsins ) *50.000 kr. staðfestingargjald *Mörg stéttafélög niðurgreiða námskeiðsgjöld Ertu tilbúinn fyrir breytingar í þínu lífi? Allar frekari upplýsingar og skráning: hrafnhildur@andlegeinkathjalfun.is Ég tek vel á móti þér!